Gaman að þú skyldir koma
17.10.2009 18:22:15 / Gloppa

Uppfærsla

Jæja, þá er ég búin að vera hér í Svíaríki í tæpar 2 vikur og allt gengur vel.  En þetta er nú samt á enda og ég þarf að fara heim um helgina, þar sem það þarf að taka saumana og svo vonandi bíður mín bréf um sjúkraþjálfun.  Eygló ætlar að vera svo sæt í sér við litlu systur að skutla mér heim til Köben.  (Annars sæti hún uppi með mig fram að jólum...)
Batinn er allur á réttri leið, tel ég og ég er farin að geta staulast um hækjulaus stundum svona innandyra.. annars með aðra hækjuna.  Ég geri ákv. æfingar á hverjum degi sem taka 40-60 min. þar sem ég þjálfa hnéð og núorðið finn ég daglega hvað sumar æfingarnar verða léttari... aðrar eins og þessi þar sem ég á að sitja á gólfinu og beygja hnéð, er enn hunderfið.  Mér finnst ég alltaf geta beygt hann voða mikið en svo þegar ég "kíki" þá nær hællinn ekki einu sinni að hægra hné. ;O) 
Yfirleitt þegar ég ligg hérna á gólfinu og geri æfingarnar mínar eru hundarnir alveg viss um að nú sé kominn leiktími.  Nanoq mætir alltaf með boltann sinn og vill endilega fara í fótbolta.  Skilur ekki hvað ég er treg til... Thelma (dverg pinscher) vill reyndar, ekkert endilega leika, heldur vera með í æfingunum og þá skiptir engu ef eina leiðin til þess, er sú að vera framan í mér...  Þess á milli er hún búin að eigna sér staðinn á milli lappanna á mér og helst undir teppi... Ef ég er ekki nógu snögg að lyfta teppinu eða færa lappirnar í sundur, byrjar hún bara að krafsa.  Að æfingum loknum, næ ég mér í baunapoka í frystinn og þá fer Nanoq (boarder colly tegund)

En þetta er vonandi samt allt í lagi og vonandi næ ég að byrja að vinna aftur í næstu viku.

Talandi um vinnu...enn hefur ekkert gengið að fá vinnu hér úti sem leikskólakennari.  Ég sótti um á 3 stöðum um daginn, fékk eitt atvinnuviðtal (en var of menntuð í stöðuna), fékk eitt bréf, þar sem mér var tilkynnt að ég fengi ekki viðtal og heyrði ekki bofs frá þeim þriðja.
En það þýðir ekkert að láta deigan síga og halda bara á.  Með hjálp internetsins er ég aðeins búin að bæta í og breyta umsókninni minni og nú er ég búin að taka út allt sem viðkemur því að tala málið ekki til fulls.  Ég er orðin alveg fær um að bjarga mér í flestum tilfellum og þeir/þær/þau verða bara að dæma mig út frá umsókninni og bréfinu.  Þegar þessu bloggi er lokið, ætla ég að fara í það að prenta út umsóknirnar og taka þær svo með til DK og senda á mán.

Ég er búin að panta farið til USA og það því endanlega ákveðið að ég fer.  Ég flýg í gegnum Ísland þ. 12.nóvember og verð úti í viku.  Ohhh þetta verður æðislegt...  Guðný Erla og Erla Rán ætla að koma út líka og svo verður Hildur Sólveig þar auðvitað með litla ET-inn sinn hann,  Elvar Þór.  Það verður æðislegt að fá að knúsast aðeins í þeim báðum (þ.e. ERR2 og ET)




» 0 hafa sagt sína skoðun

07.10.2009 23:44:24 / Gloppa

Aðgerð

Í gær þriðjudaginn 6.okt 09. fór ég í "langþráða" aðgerð á vinstra hnénu.  Forsaga málsins er sú að fyrir tæpum 4 árum datt ég fyrir utan húsið heima hjá mér og sleit liðband í vinstra hnénu.  Síðan þá hef ég bara ekki staðið í lappirnar svo ekki sé meira sagt.  Við minnsta álag, bleytu, hálku eða hvað það nú var, var ég komin niður á gólf/götu.  Akkúrat enginn stöðugleiki í fætinum.
Í vor (í maí, nánar tiltekið) datt ég svo enn og aftur á hjólinu mínu á leið heim.  Var að flýta mér heim því ég ætlaði að ná næstu lest til Eyglóar systur, eftir rúman hálftíma.  Ég átti eftir að pakka smá niður og gera íbúðina klára til sýningar á sunnudeginum. (þetta var á laugardegi)  Ég hjólaði vitlausu megin á götunni og þegar ég mætti hjólandi manni, ákvað ég að víkja upp á gangstétt (hefði alveg getað vikið á annan hátt) og hugsaði um leið "þetta á eftir að enda illa"... sem það og gerði.  Ég, eins og áður sagði, hrundi í götuna og með herkjum gat ég staðið upp og haltrað heim.  Skemmst er frá því að segja að ég komst til Svíþjóðar en í vinnu fór ég ekki næstu tvo dagana.  Á mánudeginum fór ég svo til læknis því hnéð var stokkbólgið og ég var ansi hrædd um að ég hefði skaðað eitthvað meira í þetta sinn.  Læknirinn sendi mig í sónar og það kom akkúrat ekkert út úr því.  Ekki sjáanlegt að neitt væri að.  Því næst sendi doksi mig upp á spítala þar sem ég fékk tíma í júlí, eftir að ég kom aftur út eftir sumarfrí á Íslandi.  Sá læknir,  ákvað að senda mig í MR skanna til að finna út úr því hvað væri að.  Þann tíma fékk ég í byrjun september, á sunnudegi.  Tæpum tveim vikum síðar fékk ég svo aftur viðtalstíma við lækni sem sagði mér að það væri alveg ljóst að ekki væri allt í lagi með hnéð.  Satt best að segja varð ég glöð þá.  Það var þá staðfest að allur þessi sársauki og pirringur og óþægindi í hnénu væru ekki bull. Og ég var sem sagt send í aðgerð.

Í aðgerðinni kom í ljós að skaðinn var slæmur.  Doksi sagði að það væri nú ekki oft sem þeir sæju svo slæman skaða.  Þeir fjarlægðu hluta af liðþófanum beggja vegna í hénu, fjarlægðu slímhimnu í hnénu og löguðu fremra krossbandið sem var mikið skaðað. Ef allt gengur upp verður þessi aðgerð látin duga, en eftir heimsókn til sjúkraþjálfara og læknisins aftur verður metið hvort það þurfi að endurbyggja liðþófann og þá þarf ég í aðra aðgerð.  Vonum bara að svo verði ekki.

Ég var svæfð á meðan þetta fór allt fram og áður en ég sofnaði sagði svæfingarlæknirinn að stundum dreymdi mann af þessari svæfingu og þá oftast það sem maður væri að hugsa um rétt áður en maður sofnaði.  Svo fór hann að spyrja hvað ég hefði gert í sumarfríinu og ég fór inn í svefninn hugsandi um sólina, sumarið, góða veðrið og Sæluhelgina... En.... dreymdi svo bara akkúrat ekki neitt.  Ég var eiginlega bara hundfúl þegar ég fattaði það.

Eygló systir kom og var hjá mér fyrir og eftir aðgerð.  Það var ómetanlegt.  Takk fyrir það elsku sys. 
Í dag, keyrðum við svo sem leið lá til Påskallavikur og hér ætla ég að vera næstu tvær vikurnar á meðan ég er að jafna mig.  Miklu betri aðstaða og pláss heldur en heima hjá mér.  Hnéð á mér er u.þ.bþ 10000000 falt, svo bólgið er það en ég er að vinna í því að laga það. Ég má stíga létt í fótinn en er samt með tvær hækjur mér til stuðnings.  Hundunum líst reyndar ekkert á þær og mig þegar ég legg af stað með þær, hehehhe......

En sem sagt, þrátt fyrir allt, hef ég það bara nokkuð gott.  Ég finn minna til í hnénu nú en ég gerði fyrir aðgerð svo ég hef trú á því að þetta muni lagast og verða betra.


Að öðru, fyrst ég er komin í gang..

Ég er flutt frá Vesterbro á Nörrebro.  Íbúðin sem ég var í var seld.  Nú bý ég í 56 fm stúdíóíbúð sem inniheldur bæði ELDAVÉL og STURTU.  Meira en var á Vesterbro.  Ég held að þarna muni mér bara líða vel.  Ég er búin að ákveða það og eins og ég segi, þá er þetta mjög fín íbúð og mun stærri en sú sem ég var í.  Svo nú er ennþá meira pláss til að taka á móti góðum gestum.

Nú, svo er för minn heitið til USA í nóv.  Elvar bróðir verður 50 ára og eins og alltaf, þá er skyldumæting þangað.  Ég er reyndar ekki búin að panta ennþá, en ég FER og ætla að vera í viku.


Þetta var helst í fréttum í dag, set inn frekari fréttir af framvindu batans.  Fylgist með á www.gloppa.blogcentral.is :) 

over and out

Hrakfallabálkurinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.05.2009 21:43:20 / Gloppa

Dagurinn þegar seinni hlutinn gekk á afturfótunum

Dagurinn í dag byrjaði með sól og þvílíkri blíðu.  Það skal tekið fram í upphafi að sú sól og blíða hélst allan daginn.  Ég hitti  Guðný Erlu, Auði Birnu og börn á Hovedbanegården um hádegisbilið og við fórum í Dýragarðinn þar sem við vorum þar til ég þurfti að yfirgefa þau til að skila af mér mínum grísum.
Svo hófust vandræðin...

Ég kom of seint heim að skila börnunum, foreldrarnir (jah ok. önnur mamman) aðeins seinna en það og ég slóraði aðeins lengur en dreif mig svo út, því ég byrjaði aftur í dönskunáminu í dag og tíminn átti að byrja 17:15 og ég að sjálfsögðu seinna á ferðinni en ég ætlaði, sér í lagi þar sem ég átti eftir að finna staðinn þar sem tíminn var.  Það tókst nú eftir ekkert allt of langa leit en auðvitað mætti ég of seint.(ég hata að mæta of seint).  Allavega tíminn var fínn og ég virðist hafa lent í nokkuð hressum bekk. 
Á leið heim, kom ég við á KFC og kippti með mér einum Twister og hlakkaði mikið til að fara heim að borða hann.  Flýtti mér eins og ég gat.  Um það leiti sem ég er að labba inn í götuna mína, fatta ég að ég er lyklalaus og að lyklarnir væru á eldhúsbekknum!!!!!!!!
Ég hringdi þá í eigendurna, sem ekki áttu aukalykil í sínum fórum svo nú voru góð ráð dýr.  Á meðan ég er að tala við Sumbal fatta ég að ég hafi farið út bakdyramegin, þegar ég skaust heim í morgun og þar sem hún er nú ekki 100% örugg ef maður fer lokar henni utan frá, sá ég glætu.  Ef ég kæmist inn í garðinn (þess má geta að garðurinn tilheyrir nokkrum blokkum sem liggja umhverfis hann og mynda hálfgerðan hring), kæmist ég sennilega inn bakdyrameginn.
Á meðan ég stóð og var að hugsa um á hvaða bjöllu ég ætti að hringja til að fá einhvern til að koma niður og opna fyrir mig hurðina inn í garðinn, (það þarf sérstakt apparat til þess, nokkurskonar segul)  komu nokkrir strákar aðvífandi.  jú, jú ekki málið, inn í garðinn opnaði einn þeirra og ég að sjálfsögðu lét hurðina skella á eftir mér.
 Þá fattaði ég....útidyrahurðin á bakvið væri mjög líklega læst og til þess að opna hana vantaði mig lykillinn sem eins og áður sagði var á eldhúsborðinu.  .."Jæja", hugsaði ég, "ég er þó allavega komin inn í garðinn og get bara skilið hurðina (hliðið) eftir opna til að fara út og hringja á dyrabjöllu", en "#$&%$//#%&(/&/ til þess vantaði jú sama apparatið og til að opna utanfrá...svo nú var ég ekki bara læst úti, heldur inni í garði. 
Ég lít í kringum mig og auðvitað var ekki sála sjáanleg, nema einhver kokkur..(sem kemur málinu akkúrat ekkert við).  Ég fer þá að kíkja að gluggunum á 1 hæðinni (n.b. ég bý á 3 hæð skv. ísl.talningu)  og í mínum stigagangi var allt slökkt...EN... ég mundi þá eftir því að ég hafði einhvern tímann hleypt inn manni á nr. 3 með mínum "masterlykli" svo að lyklar á nr. 3 hlytu að virka á nr. 5.  Í glugga (á nr. 3 var ljós svo ég fór þangað og teygði mig upp í gluggann og bankaði með símanum (náði ekki upp öðruvísi) og þá kom þessi líka elskulegi maður til dyra og opnaði fyrir mig dyrnar.  Svo ég fór upp og eins og ég hélt þurfti ekki stórátak til að komast inn bakdyramegin.
Held ég láti smíða aukalykil/lykla og geymi viðsvegar um bæinn
Þetta endaði nú allt vel, en þegar ég kom heim var ég komin með dúndrandi hausverk og Twisterinn minn orðin kaldur.........


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.04.2009 18:54:41 / Gloppa

Ætli það sé komið sumar?

Ég var búin að skrifa heilan helling um góða veðrið sem er í Danmörku þessa dagana.  Svo fór ég að vesenast í myndum og þá datt auðvitað allt út því ekki hafði ég vit á að vista.
En... í styttra máli sagt, er alveg rosalega gott veður hér þessa dagana.  Hitastigið í kringum 20 gráðurnar (segja mér fróðir menn og konur) og sólin brosir sínu breiðasta.  Ég held ég sé nú búin að taka einhverjar myndir af surminu en þær eru ekki komnar inn í tölvuna og ég nenni ekki..... 
Ég er búin að finna garð sem ég ætla að "eiga heima í " í sumar og er það Kongens Have.  Kósý garður með fullt af plássi og fullt af fólki ;) ummm......gott að sitja þar í sólinni og safna brúnku.

Annars gengur bara vel eins og áður.  Hvað varðar framhaldið hér í Köben er ég eiginlega á því að ef ég fæ ekki vinnu á leikskóla þá ætli ég heim.  En til að fá vinnu þarf maður víst að sækja um og það er það sem ég þarf að fara að drífa mig í að gera.  Uppfæra ferilskrá og labba svo á milli og sækja um.

Eygló systir var hér um síðustu helgi.  Hún kom á föstudegi og við fórum að sjálfsögðu á spilavist í Jónshúsi.  Það var ljómandi gaman að vanda fyrir utan það að ég var að drepast úr hausverk allan tímann og við sem ætluðum að kíkja í bæinn.. gerðum það eiginlega bara ekki neitt því ég var með þennan endalausa hausverk sem ekki fór fyrr en ég sofnaði... Ömurlega pirrandi og svekkjandi.  Gekk nú bara svona sæmilega í spilavistinni, engan veginn vel en var heldur ekki lægst sem kom mér á óvart..  En það er alltaf gaman að spila. 
Á laugardaginn kom svo María vinkona Eyglóar til Kbh. á leið í frekara ferðalag um DK.  Hún gisti líka hérna hjá mér og við hittum Vedbæk familie í Kongens Have í smá pikknikk og pikknikkið okkar Eyglóar var að sjálfsögðu bjór. ;)  Á laugardagskvöld fórum við svo á kosningavöku, vegna Alþingiskosninganna, á Café Blasen.  Það var mjög gaman og eini gallinn var að það var reykt þar inni.  Ótrúlegt hérna að ef pöbbarnir eru nógu litlir, þá má reykja þar.  Skil þetta ekki......


Sylvester og Ella í legestue.  Þar er sungið og spilað á hljóðfæri.  Rosa gaman

Og það er segin saga að ef annað þeirra er með eitthvað hljóðfæri vill hitt fá það... Dásamleg...

Er þetta vináttutákn eða merki um það sem koma skal???


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.04.2009 15:37:43 / Gloppa

Vorið er komið og grundirnar gróa

Hér í kóngisns Köben er sumarið á næsta leiti.  Sólin skín sínu fegursta upp á nánast hvern dag en þó misjafnlega mikill hiti og vindur sem fylgir henni.  Í dag var rosalega flott veður og var ég úti frá 10-16:00 í dag.  Á svona dögum er bara kósý að vera í vinnu þar sem maður er sjálfs síns herra og getur bara verið úti allan daginn ef mann langar til.  Mest allan tímann var ég í Kongens Have, sem er garður rétt hjá Kongens Nytorv.  Risastór og flottur garður þar sem allt er til alls.  Ég er ekki frá því að ég sé örlítið sólbrunnin í andlitinu... allavega finn ég alveg fyrir því að hafa verið úti.


Íslands ferðin var algjör draumur.  Náði að hitta flest alla sem mig langaði að hitta, en þó ekki alla og verða þeir því settir í forgang næst. ;)  Sér í lagi þú Svalasta...  Ég átti mjög góða daga í faðmi fjölskyldunnar og náði meira að segja að vera við skírn nýjustu frænkunnar sem hlaut nafnið Manda Malinda.  Ohh.... hún er svo sæt... með  heilmikið kolsvart hár. 




hér er mynd af skvísunni henni Möndu Malindu.  Hún er algjört æði.

Ég fór líka í sund nánast alla dagana á meðan ég var fyrir vetan.  Mikið búin að sakna þess að komast ekki í sund á Súganda.  Ég er sérstaklega þakklát Louise og Jacob fyrir að hafa gefið mér þessa ferð.  Ekki slæmt að fá Íslandsferð gefins bara svona upp úr þurru. 

Eygló systir er að koma í heimsókn um næstu helgi.  Hún á svo von á vinkonu sinni á laugardaginn, frá Íslandi að ég tel, og munu þær að sjálfsögðu báðar gista hér.
Svo er von á Róberti fljótlega, veit bara ekki alveg hvenær það verður en það skýrist nú.  Sólrún vinkona ætlar svo líka á að koma í júní.  Fleiri hafa nú ekki boðað komu sína að sinni.  Katrín reyndar er að spá í að koma kannski í sumar og ég sagði henni að kippa nú bara Jónu Möggu með ...the more the marrier...  Bryndís... ég ætla mér líka að búast við ykkur Þórunni Birnu í sumar... er mér ekki bara óhætt að gera það??? ;)  það væri nú rosalega gaman. Svo er spurning hvort að Hafrún sys. sendi Önnu Karen til Köben í smá frænkuhelgi... alveg tilvalið...
 En sem sagt.  Fullt af lausum helgum og nóg plássssss... Verið velkomin

Ég á von á ljósmyndara hingað heim á miðvikudagsmorgun.  Eigendur íbúðarinnar voru að skipta um fasteignasölu og þau (á fasteignasölunni) vilja koma og taka nýjar myndir.  Skemmtilegt það.... :s  Svo verður einhvern tímann svona opið hús.. þar sem fólk getur komið og skoðað.  Sérlega skemmtilegt það :$

Kóræfing í kvöld.. er nú varla að nenna af stað aftur... en ekki hjá því komist...

Læt þetta duga að sinni.

Sólarkveðjur :haha:



» 3 hafa sagt sína skoðun

22.03.2009 18:46:50 / Gloppa

Húrra ég er lifandi...

Undanfarið hafa mér borist fjölmargar kvartanir, ýmist í tölvupósti, hér á blogginu, munnlega, á msn og á facebook.  Fólk er farið að sakna þess að ekkert sé skrifað hér.  Ég er því að hugsa um að láta undan þrýstingi og blogga smá.  Reyndar verður það sjálfsagt að ritgerð eins og alltaf þar sem svo langt líður á milli. 
Það sem er verst við að blogga svona sjaldan er að sjálfsagt gleymist eitthvað sem vert væri annars að segja frá og ekki síður að ef að ég mun einhverntímann sjálf fara í gegnum bloggið til að sjá hvað var brasað í Dk. þá er eitthvað lítið að sjá.

En hvað um það, ég er allavega komin af stað svo við sjáum bara hvað setur.

Ég er flutt eins og þið sjálfsagt vitið.  Og hér ætla ég mér að vera það sem eftir er af þessari dvöl minni.  Nenni ekki að flytja aftur.  Þetta er nú frekar lítil íbúð satt best að segja.  Einhverjar myndir á ég, kannski ég skelli þeim bara hér inn...


Þessir tveir gluggar eru á stofunni


Útidyrahurðin


Þetta blóm gáfu þau Sumbal, Christoffer og Samuel mér


Og þessi blóm gáfu þau mér líka


Jamm og þetta tré á held ég barasta heima í þessari íbúð.  Held það nánast fylgi með í leigunni ;)


Svona lítur eldhúsið mitt út, þar sem enginn vaskur eða önnur "óþarfa þægindi" komast fyrir á klósettinu þá er allt "svoleiðis dót" s.s. hárblásari og fl. geymt í eldhúsinu.


Eins og sést þá er ekki hægt að skipta um skoðun þarna inni.  Það þarf nánast að bakka inn og setjast.  Engin sturta, enginn vaskur.  Þetta var ábyggilega hannað sem kústaskápur fyrst.

En þrátt fyrir að plássið sé ekki mikið í eldhúsi og klósetti þá dugar þetta alveg og hér líður mér vel, get eiginlega ekki líst því hversu miklu betur mér líður núna.  Herbergið og stofan eru alveg ágætlega stór en það er eins og mig minni að íbúðin sé um 37 fm í allt.  En sel það þó ekki dýrara en ég keypti það.
Staðsetningin er algjörlega frábær og ég er rosalega miðsvæðis.  Eins og ég hef áður sagt þá er Isetedgade bara næsta gata við og þar er nú oft mikið líf og fjör.  Tvisvar hefur mér verið hvíslað að mér "kók, kók kók", einu sinni var mér boðið "cola" og svo um daginn þegar ég var að labba heim var ein vændiskona hinum megin við götuna að bjóða ungum mönnum "sex".  Þær eru nú stundum 4-5 á hornunum þegar ég er á leið í vinnu.  Nú en svo fyrir þá sem eitthvað til þekkja, þá er Vesterbrogade líka stutt frá.  Allt annað líf þar og fullt af fínum búðum, sem ábyggilega er hægt að gleyma sér í.

Sigrún og Guðni voru hérna úti um daginn.  Voða gaman að hitta þau.  Þau komu með saltkjöt sem við borðuðum. 
UUUUUUmmmmmmmmmmmmmm ég elska Saltkjöt og varð svoooooooo glöð að fá það og þau komu líka með lambalæri.  Mikið rosalega var þetta gott. 

En annað.....
Ég hef nú ekkert farið til Eyglóar systur eftir áramótin.  Við fórum náttúrlega til Íslands á ættarblótið og svo komu hún og Þórunn Gyða hingað í afmælið mitt og svo stakk hún af til Íslands aftur.  Algjör flökkukind.  En ég stefni nú á að fara til hennar um páskana... jah.. nema einhver sé á leið í heimsókn til mín.
En ég hafði það af að fara til Lund(s) um síðustu helgi.  Þar býr Þórunn og við skemmtum okkur konunglega.  Tókum því frekar rólega á föstudagskvöldinu, fórum í bíó á "He's just not that into you" og kíktum svo á pöbb á eftir.  komnar heim rúmlega 03:00.  Sömu sögu er hins vegar ekki hægt að segja um laugardagskvöld en þá var vel tekið á því og farið í eftirápartý og allt.  Í þessu eftirápartý komst ég að því að ég er bara virkilega ekki hrifin af eiturlyfjum, þó það sé "bara hass" eða "bara maríjuana".  Jökkkkkkkkkkkkkkkk....  En við skemmtum okkur þó ansi vel og ekki komnar heim fyrr en um 08:00.

Næstu helgi er ég svo að fara með Kvennakórnum í Kaupmannahöfn (Den islandske kvindekor i Köbenhavn) á kóramót í Stokkhólmi.  Þar verða samankomnir íslenskir kórar frá norðurlöndunum ef ég man þetta rétt. Lagt verður af stað á föstudagsmorgun og komið heim á sunnudagskvöld.  Farið verður með lest svo þetta er nokkurra klukkutíma ferðalag.  Ég er voða spennt og held að þetta verði bara mjög gaman.  Ætli við Auður Birna reynum ekki að hitta Arnar og Rebeccu á föstudagskvöldinu í stað þess að fara í kokteilboð hjá sendiherrahjónunum.. býst við því.

Það gengur bara vel í vinnunni.  Bæði börnin orðin vön mér og sæmilega sátt.  Hér er mynd af krílunum í vagninum í fyrsta göngutúrnum okkar.  Það skal tekið fram að myndin er birt með leyfi foreldranna.

Sylvester og Ella. 

Þau eru nú ekki alltaf svona döpur.. en þetta var tekið fyrstu dagana sem ég var með þau bæði og Ella var nú ekkert allt of sátt.  Henni fannst þetta heimsins mesta óréttlæti að vera sett bara í pössun, hún sem var vön því að hafa alltaf mömmu og pabba heima... En við erum orðnar voða góðar vinkonur í dag og síðar munuð þið fá að sjá myndir af þeim brosandi.  Þær eru bara enn í myndavélinni sem er batteríislaus frammi í eldhúsi og....

Þar sem ég er að fara til Stokkhólms um helgina mun ég missa af spilavistinni sem haldin verður í Jónshúsi á föstudaginn.  Síðasta föstudagskvöld í mánuði yfir veturinn er haldin Icelandair spilavist í Jónshúsi.  Ég er búin að mæta síðan í nóvember og finnst þetta alveg rosalega gaman.  Spila og drekka bjór og svo eru þvílíku kræsingar alltaf... Rosalega gaman og finnst mér ótrúlega fúlt að missa af henni.  Ætli það sé ekki bara hægt að fresta henni fyrst ég kemst ekki???? hehhe

Jæja gott fólk.. nú er ég eiginlega bara tóm... 

Ég vil bara að lokum minna á að hér er nóg pláss til að gista og allir velkomnir.  Það væri nú alveg voðalega gaman að fá einhverjar heimsóknir svona áður en árið er liðið og ég kannski bara komin heim.

skjáumst síðar.

Kærlig hilsen

Liljan

 

» 9 hafa sagt sína skoðun

14.01.2009 19:51:07 / Gloppa

Allt að gerast á nýju ári.

Vá... það er svo sannarlega allt að gerast há mér núna.  Í dag var síðasti dagurinn minn hjá fjölskyldunni "minni" , eða þeirri sem ég byrjaði hjá í haust.  Það sem þetta fólk er frábært, er bara frábært.  Ég hef skrifað um það áður og það hefur ekkert breyst.  Svo sannarlega ekki.  Í kveðjugjöf gáfu þau mér myndaramma með tveimur myndum af okkur Samuel saman.

Allavega það sem er að gerast er...


1. Vinna

Ég er búin að ráða mig í að vinna hjá vinahjónum við að passa börnin þeirra samtals tvö stykki.  Þau búa í Vesterbro sem er í næsta nágrenni við Tívolíið, Hovedbanegården og Istegade.  Megin ástæða þess að ÉG valdi þetta fólk var sú hvað þau byggju miðsvæðis og í ljósi þess að ég var ekki búin að finna húsnæði, þá sá ég þetta góðan kost þar sem allar áttir liggja að Hovedbananum.  (aðal járnbrautarstöðin í Köben, fyrir þá sem ekki þekkja til).Stutt frá Strikinu.   Þetta eru mun yngri börn en ég hef verið að passa í vetur eða um 8-9 mánaða.  En það er nú allt í lagi.
Ég reyndar fór og sótti um vinnu á leikskólanum hans Krumma míns, en þar voru svörin "bæði og".  Voða gott að fá leikskólakennara með mikla reynslu EN talar ekki nógu mikla dönsku.  En svo reyndar nefndi hann í tölvupósti svokallaða "Vikar" stöðu (afleysing).  Ég spyr þá á móti hvað við séum að tala um... mæti ég á hverjum degi í ákveðinn tíma á dag, eða hringir hann þegar hann (N.b. leikskólastjórinn er karlmaður) vanti mig. Við þessum tölvupósti fékk ég bara ekkert svar svo ég ákvað að halda mig bara við það starf sem ég hefði verið að vinna.  Fer svo bara á svona "leikstofur"   til að hitta annað fólk.  Fínt.... Svo líka fór ég að hugsa annan kost við þetta starf.  (þó maður sé svona einn) það er það að í sumar er maður svo mikið sjálfs síns herra.  Get farið í bæinn með börnin (verst að maður má ekki drekka bjór í vinnunni :$ ) og notið þess að vera úti í sólinni sem ég ætla að hafa í sumar.  Og það sem meira er að þessar tvær fjölskyldur eru svo glaðar að ég hafi valið þær að ég er búin að heyra svona 20 sinnum (án þess að ýkja held ég bara) "We're so happy".  Svo er bara að vona að ég standist þeirra væntingar. ;) 
En í heildina séð líst mér mjög vel á þetta fólk og vona að við getum unnið jafn vel saman og ég, Sumbal og Christoffer höfum gert.

2. Húsnæði

Vildís, (þessi sem ég flutti upp til um áramótin)  er að flytja heim til Íslands aftur núna í febrúar.  Svo þá var að byrja að leita að húsnæði.  Fyrr í vetur var ég búin að skoða íbúð sem Sumbal og Christoffer eiga með það í huga að leigja annað herbergið þar, því leigan var annars 8000 dkr. (mjög dýrt).En þegar ég skoðaði hana fannst mér hún alltof lítil til þess að deila henni með einhverjum öðrum og þá sér í lagi einhverjum sem ég þekkti ekki neitt.  (Ég hefði þurft að borða í svefnherberginu.) Svo ég sagði "nei takk". 
Nú, þá var ekkert annað að gera svona eftir að búið var að finna vinnu að einbeita sér að herbergja/íbúða leit.  Ég skellti auglýsingu inn á einn vef sem ég skráði mig á og Ingileif, sem er með mér í kórnum, hjálpaði mér að snara henni yfir á dönsku.  Takk fyrir það Ingileif !! Allavega, auglýsingin fór inn og ég komst í samband við mann sem hafði tvö herbergi á leigu.  Misdýr og misstór og stærra herbergið á að kosta 3200 dkr. en það minna 3000dkr. Ég sendi honum svo e-mail um hvort ég mætti koma og skoða á fimmtudag, þar sem ég er í fríi þá, og það var auðsótt mál.  EN.......... í dag segja svo Sumbal og Christoffer (já, þau eru eiginlega orðin frekar stór þáttur í mínu lífi hér í DK.) að ef ég vilji leigja íbúðina þeirra sem er by the way DOWN TOWN, þá væru þau til í lækka hana.  Frekar en að hún standi auð og eiginlega vilja þau ekki selja hana núna þar sem íbúðaverð er frekar lágt í DK.  Þau vilja heldur lækka leiguna og ef þau fá einhvern sem þau þekkja og treysta þá eru þau sátt.  "Hefur þú áhuga á því" ????  Ég segi auðvitað jááááá... og þá er spurt "hvað geturðu borgað svo þú getir líka lifað af því sem þú átt eftir"  Ég segist hingað til hafa verið að borga um 4000dkr. og ég hafi sett inn max 5000dkr. í auglýsinguna mína.  Þá tala þau um 4500 dkr. og sendu mig svo heim að hugsa málið.  Og það er ég búin að gera og ég held að ég segi bara "JÁ TAKK" í þetta sinn.  Það er reyndar einn galli á þessari íbúð, sturtan er sameiginleg með nokkrum öðrum íbúum hússins.  Og hún er á efstu hæð (íbúðin er minnir mig á 3 hæð, sturtan á 6).  Vissulega stór galli en maður getur nú alveg látið sig hafa það í einhvern tíma.  Þau töluðu líka um að þau hefðu verið að spá í að setja einhvern sturtuklefa í íbúðina svo það væri eitthvað sem alveg mætti skoða.  Ég held að til að byrja með allavega geti maður alveg farið upp í sturtuna þó langt sé (bara líkamsrækt), ég meina íbúðin er DOWN TOWN.....

3. Ísland

Já, nei ég er ekki að koma vestur, ekki í þetta sinn.  Hins vegar höfum við Eygló og Þórunn Gyða, pantað okkur ferð til Íslands um aðra helgi eða 22-26. janúar.  Það kom svo frábært tilboð inn frá Iceland Express og mig langaði svo að kíkja í heimsókn til Íslands.  Ég sendi því þeim mæðgum póst um hvort ekki væri tilvalið að við skelltum okkur í ferðalag saman og færum á ættarþorrablót Bossara.  Eftir smá Fésbókar umræður ákváðum við að drífa okkur.  Í dag voru svo pantaðir miðar og er brottför til Íslands fimmtudaginn 22. janúar með hádegisvél og út aftur mánudagsmorguninn 26.janúar.  Ég á reyndar eftir að ræða við nýju fjölskylduna um þann dag, en ég efast eiginlega ekkert um annað en að það verði í lagi.  Hinir dagarnir voru auðsóttir og því hef ég litlar áhyggjur.  Þau töluðu um að það yrðu margir frídagar í jan og feb. og þetta fer bara inn í þá. ;)  En sem sagt: ÍSLAND HERE WE COME... BLÓTVÍÍÍÍ !!!  Við erum allar svo spenntar að við erum að deyja hérna.  Búið ykkur undir niðurtalningu.  Svala, ég treysti á að ég nái að hitta á ykkur SBS.

Er nema von að Vildís hafi spurt hvort ég væri með einhvern þarna uppi sem passaði svona upp á mig.  Jebb, ég hef lengi haft þá trú að "litla amma" (mamma mömmu) sæji um mig... byrjaði á því sem barn/unglingur held ég bara.  Og ég ætla að halda áfram að trúa því að hún hafi átt hlut að máli.

Þetta er nú svona það helsta sem er að frétta af mér héðan úr Dk þessa dagana.  Ég átti alveg yndisleg jól og áramót í faðmi stærstu systur og fjölskyldu, ásamt því að Sólveig og Viggi komu í heimsókn.  Algjörlega frábært.  Ég nenni nú eiginlega ekki að skrifa neitt meira um það núna en segi bara "bjór og náttföt"  !!!  Ég skal segja ykkur betur frá því síðar.  Ég fékk fullt af frábærum jólagjöfum og Petra... ég skal líka segja frá því næst. 

Að lokum vil ég þakka öllum sem sendu mér jólakort hingað til Dk.  Sjaldan verið eins gaman að fá þau.  Að öðrum jólakortum ólöstuðum þótti mér sérlega vænt um myndakortin af grísunum "mínum".  Takk takk þið öll sem senduð mér slík.  Þau eru (ásamt hinum jólakortunum auðvitað) sem stendur í glugganum en í nýju íbúðinni fá þau heiðurspláss uppi á vegg í stofunni (ásamt hinum auðvitað). 


» 10 hafa sagt sína skoðun

31.12.2008 21:48:15 / Gloppa

Gleðilegt ár.

Kæru vinir, vandamenn og aðrir lesendur.

Ég óska ykkur öllum gleðilegrar jólarestar og sendi ykkur bestu óskir um gleðilegt ár.  Vona að árið 2009 verði ykkur gott að öllu leyti. 

Ég stefni á að vera duglegri að blogga á nýju ári en lofa þó engu.  Gangið hægt um gleðinnar dyr i kvöld sem og önnur kvöld og farið ykkur ekki að voða í flugeldunum.  Sjálf  ætla ég að standa í öruggri fjarlægð og horfa á hina skjóta upp.


ykkar Lilja

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 01:22:51 / Gloppa

Jólakveðja

Kæru vinir

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Þakka liðið ár og þeim sem hjálpuðu mér á einn eða annan hátt við flutningana í haust, þakka ég sérstaklega vel fyrir ómetanlega aðstoð.

Hlakka til að hitta ykkur öll á komandi ári og vona að kreppan fari að lagast svo ég geti farið að fá heimsóknir. 


Jólakveðja

Lilja



» 1 hafa sagt sína skoðun

19.12.2008 10:36:54 / Gloppa

Jólahikk....

Vill endilega deila med ykkur hinni einu sønnu uppskrif af dønsku jólagløggi
Ótrúlega gott...

Danskt Jólaglögg

1 líter vodka
1 rúsína.

Skreytt með greni.

Svo tegar gløggid hefur verid teygad, syngja allir einum rómi

Skín í væna vínflösku,
og huggulega bjóra,
jólaglögg og eplasnafs
allt það ætĺ'að þjóra.
Dufla og daðra og leika mér
látum illa í desember
burt með sokk og skó
hér af  víni er nóg.
Ó, hvað ég elska jólin,
von' ég  hitti á stólinn.

Jebbs svona ætla ég ad hafa tad um jolin.  Bestu kvedjur til ykkar allra.  Og athugid ad jólakortin munu verda rafræn í ár, og koma tegar wordid mitt verdur klárt.

Er komin í jólafrí frá og med deginum i dag, en er reyndar i heimsókn hjá vinnuveitendunum.  Segid svo ekki ad madur skemmti sér ekki í vinnunni.

JÓLAVÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ

Lilja 


P.S. Katrín tú sendir bara lakkrísinn í pósti.


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2008 11:43:29 / Gloppa

Jólavííí

Fyrir ykkur sem viljið vita heimilisfangið í Svíþjóð þá er það eftirfarandi.

Lilja Einarsdóttir
c/o Eygló Einarsdóttir
Kulturgatan 31
57090 Påskallavik
Sverige


kv. Lilja

p.s. 8 dagar í jólavííííí


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.12.2008 10:21:10 / Gloppa

Best að nýta tímann

Ég tók tölvuna mína með mér í vinnuna í dag.  Hef nú ekki gert það oft en jú er svona aðeins að byrja á því.  Veit nefnilega núna hvernig ég get tengst internetinu héðan og nýt þess að vera ein um það ;) 
Ýmsar ákvarðanir, jah eða kannski bara tvær ákvarðanir, hafa verið teknar síðan í síðasta bloggi.  Skal þar fyrst nefna þá staðreynd að ég kem ekki heim um jólin.  Ég ætla að vera í Svíþjóð þessi jól.  Staðreyndin er að þegar ég fór að hugsa málið aðeins nánar sá ég að það væri það eina skynsamlega í stöðunni.  Peningamálin eru bara ekkert orðin almennilega góð eftir að ég flutti út og þurfti að borga húsaleiguna á himinháu íslensku gengi.  Úffff.... ég svitna bara við tilhugsunina hvað leigan hækkaði í íslenskum krónum á milli mánaða... eins gott að þeir dagar eru liðnir og nú borga ég hana bara í dönskum.
En ég ætla s.s. að njóta jólanna í Svíþjóð þar sem ég verð í jólafríi frá 20. des - 5. janúar. ;)  Langt síðan ég hef átt svona langt jólaFRÍ ;)

Hin ákvörðunin er sú að ég er að flytja um áramótin.

Fyrst um sinn verður það ekki langt heldur bara upp á þriðju hæð (bý á fyrstu núna).  Ég ætla sem sagt að hætta að leigja með þeim Siggu og Grímu.  Er orðin frekar þreytt á að búa í fataskáp.  Herbergið mitt er ekki stærra en það.  Ég kem inn í það 120 cm vindsæng, einni þvottkörfu (með því að troða henni) og pappakassa sem náttborð undir tölvuna mína.  That´s it!!!!!! meira kemst ekki fyrir þar.  Jú svo er 1 einfaldur fataskápur með 1 hillu og svo bara hengi!!!!  Eins og sjá má ekki mikið pláss.  Allavega þá er ég farin þaðan um áramótin eða reyndar náttúrulega bara þegar ég fer til Svíþjóðar.  Herbergið sem ég get fengið leigt upp á þriðju er hjá konu sem við kynntumst hérna úti og heitir Vildís.  Það er sko mun og þá meina ég mun stærra herbergi og meira að segja fylgir því rúm.  Fataskápur yfir heilan vegg og ég kæmi vel einhverjum fyrirferðarlitlum húsgögnum þar.  En ég reyndar stefni nú ekkert á að vera þar neitt lengi, bara svona þar til ég finn eitthvað annað. 

Vinnan gengur bara vel, eða þannig... Er með barn í aðlögun núna og hún grætur svolítið mikið greyjið.. er ekki alveg sátt við þetta fyrirkomulag.  En eigum við ekki bara að trúa því að það lagist fyrr en síðar.  En það er ótrúlegt hvað það tekur á að vera einn með svona ókunnugt barn sem grætur og grætur.... mætti ég þá heldur biðja um samstarfsmennina á leikskólunum sem geta tekið við þegar maður hefur fengið nóg... úfffff............ Hafrún vink. ég get vel ímyndað mér að það hafi stundum tekið á að vera dagmamma...  en já ég ætla að trúa því að þetta lagist sem fyrst.  Þau sofa reyndar núna og eru búin að sofa í 11/2 tíma.  Vakna eftir svona 1/2-1/1.

Það rignir og rignir hér í Köben núna.  Snjóaði aðeins um daginn, en það varði stutt og rigningin tók aftur völdin.  Það var sko ekki séns að ég nennti að hjóla í morgun í vinnuna.. ég tók bara strætó.  Svo er það dönskuskólinn eftir vinnu svo þetta er langur og strangur dagur.  Ég ætlaði að vera rosa dugleg áðan og gera verkefni fyrir skólann sem ég var ekki einu sinni viss um að ég ætti að gera... en þá gleymdist verkefnablaðið heima svo stílabókinni var bara lokað aftur og bloggað í staðinn.  Eruð þið ekki glöð með það?????

Ég keypti fyrstu jólagjöfina í gær.  Loksins þegar ég átti pening ;)  Svo verða fleiri gjafir ásamt jólakortum keyptar á næstu dögum.  En allt í einu finnst mér eins og tíminn sé að hlaupa frá mér og það verði komin jól áður en ég nái að snúa mér við. 

Jæja, best að ég láti þetta duga að sinni.  Hittumst heil þó síðar verði ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.11.2008 16:52:00 / Gloppa

Hjólað um Köben

Vá ég held ég sé búin að hjóla fyrir mánuðinn a.m.k. bara í dag.  Ég lagði af stað í morgun í Íslenska sendiráðið sem reyndar er nú ekkert svo rosalega langt frá.  Þar ætlaði ég að fá aðstoð við að nálgast sakavottorð sem ég þarf vegna vinnunnar hér en þegar þangað var komið gátu þeir ekkert gert fyrir mig nema lánað mér símann svo ég gæti hringt til Íslands og pantað það þaðan.  En vissulega var það hjálp út af fyrir sig.  Svo hjólaði ég auðvitað heim aftur þar sem ég fækkaði aðeins fötum því ég var allt of mikið klædd og var að kafna úr hita. Ég var s.s. í snjóbuxum, peysu, flíspeysu og regnjakka, því það rigndi og jú svo var ég auðvitað í stígvélum eins og lög gera ráð fyrir.  Allavega, ég fór heim og fækkaði fötum og hélt svo af stað aftur og í þetta sinn á Skattstofuna.  Það er "örlítið" lengri leið en Sendiráðið var og það rigndi enn.  Eftir Skattinn þvældist ég um allar búðir til að leita að ostasósu í ostasósukjúklinginn án árangurs.  Nú svo kom ég aðeins heim aftur, en fór svo til læknis þar sem ég er búin að hósta eins og stórreykingarmanneskja í fleiri vikur.  Fékk einhverja hóstamikstúru við því sem mig mun svima og syfja af gaman :s) 2x á dag takk fyrir pent og ef ég drekk alkahól ofan í þetta þá verður sviminn og syfjan sterkari.... fussum svei og ég á leið til Svíþjóðar um helgina...  Jæja við finnum einhverja góða lausn á því....

En sem sagt svo hjólaði ég í Apótek og eftir það hélt ég af stað í Kwikly í lokatilraun til að nálgast ostasósuna í ostasósukjúklinginn. ;)  og viti menn, allt er þegar fernt er eða í fimmta eða ég veit eiginlega ekki númer hvað þessi tilraun var.  En ég held samt að ég hafi farið samtals í 4-5 búðir til að kaupa það sem þarf í þennan rétt.  Og vitiði hvað???? Ég er með rasssæri af hnakknum.  OG HANA NÚ!!!!!!!!!!!!!!!

Annars allt fínt að frétta bara, hér bara rignir nú upp á hvern dag sem er frekar leiðigjarnt verður að segjast.  Sér í lagi þegar maður er búinn að týna regnbuxunum sínum og þarf að ferðast um í snjóbuxum. 

Annað barnið sem ég var að passa er búinn að fá pláss á Vuggestue (leikskóla) og er því hættur hjá mér.  En það byrjar stelpa hjá mér í staðinn á mánudaginn svo það er ekki nema viku gap á milli.  Hún heitir Milla og er 1 árs.  Algjör rúsla ;)

Jæja ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að skrifa meira svo ég segi bara, over and out...

kv. Lilja, með rassæri af hnakknum og bloggaði með hjálp Karólínar.


 


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 15:34:41 / Gloppa

Jæja þá

Þrátt fyrir að kvartanirnar séu ekki orðnar 25 (tel ekki með svona nafnlausar kvartanir) skal ég blogga.  Segið svo ekki að maður geri ekki neitt fyrir neinn.
Hér er svo sem nóg að gera og í raun ætti ég núna að vera að læra.  Ég er s.s. byrjuð í dönskuskólanum og er þar með fólki frá m.a. Brasilíu, Frakklandi, Búlgaríu, Kína, Japan ofl. en bara engum frá hinum norðurlöndunum.  Mér finnst ég nú  bara standa nokkuð vel að vígi miðað við þau finnst mér, allavega svona við fyrstu sín, en ætli það eigi ekki eftir að breytast.  Reyndar var ég svo að frétta í gær að það væri einhvers staðar hér annar skóli sem væri sérstaklega ætlaður fyrir norðurlandabúa.  Þarf að kynna mér það nánar.
Í gær var gaman.  Þá var kórinn "minn" með útgáfupartý.  Þær tóku sem sagt upp geisladisk í fyrravor og  nú er hann klár.  Haldið var smá teiti af því tilefni í Sendiherrabústaðnum.  Við sungum að sjálfsögðu nokkur lög og eftir það var farið út að borða á veitingastað þar rétt hjá.  Ég kíkti svo aðeins í bæinn með Gyðu sem kom þangað með Gullu sem er í kórnum.  Það var bara rólegt en fínt.  Við fórum á Hviide Vinstuen en kl. 2 var ég orðin það þreytt að mig langaði heim og það gerði ég.  Ekki alveg tíbýsk ég samt.  En þetta var bara gaman og fínt að "kynnast" öðru fólki ef hægt er að segja sem svo.

Að öðru.
Eygló systir kom í heimsókn til mín um mánaðarmótin.  Við fórum af stað á nornaveiðar og fundum reyndar eina en það var bara ekki rétta nornin, heldur var það Halloween norn.  Við sem sagt kíktum á Sam's bar og skemmtum okkur mjög vel.  Á laugardagskvöldinu fórum við svo á Hviide Vinstuen og drukkum þar því bjórinn var svo ódýr.  (Er ég búin að skrifa um þetta áður, mér finnst það svo ég stoppa núna).

Næstu helgi er svo för minni heitið til Svíþjóðar.  Þórunn kemst því miður ekki með svo ég fer bara með lestinni alla leið til Kalmar þar sem Eygló tekur á móti mér.  Það verður án efa bara gaman.

Nú svo er ég að velta fyrir mér jólunum!!!!!  Ég veit bara ekkert hvað ég á að gera.  Mig langar til Íslands en það kostar eins og áður sagði frí.  Ég á svo sem alveg von á því að ég fái það en þá er ég líka að spá hvort ég eigi að vera þar yfir áramótin líka eða koma út aftur fyrir áramót og eyða þeim þá kannski í Svíþjóð.   Úfff.... ég veit ekki.... Auður og Ársæll eru búin að panta far heim þ. 18.des. og mig langar líka.  Ætli ég verði ekki bara að tala við Sumbal á morgun og athuga hversu mikið frí ég get fengið og látið svo bara fjölskyldu barnsins sem er að byrja hjá mér vita að ég verði ekki við þessa daga. 
Já það er sem sagt að byrja annað barn eftir viku.  Alvin (borið fram Elvin) sem ég var búin að segja ykkur frá fékk óvænt pláss á Vuggestue og byrjar þar á morgun.  Það er svo skondið Svala að hann minnir mig eitthvað svo á Sverri Bjarka.  Veit eiginlega ekki afhverju en það er bara eitthvað við hann. ;)  hehehhe  En sem sagt í hans stað byrjar stelpa sem heitir Milla og er 1 árs líka.

Daninn er byrjaður að skreyta fyrir jólin í búðum.  Víða eru farin að sjást jólatré í búðargluggum og byrjað er að hengja upp jólaskreytingar yfir götur.  Ég verð að segja að ég hlakka eiginlega svolítið til að fara niður á Strik á aðventunni og njóta þess að labba um í "jólunum", setjast inn á kaffihús og fá sér heitt kakó eða bara kaldan bjór. Ummmmm það verður æði.

umm... hvað á ég að segja meira??? 
já svarið við síðustu getraun....  Katrín, þú hittir naglann á höfðuðið.  Hot spring river this frenchman = Hver á þennan frakka?

Annars er ég frekar andlaus svona á sunnudegi og held að ég stoppi bara hér. 

Sjáumst kannski í Desember. 


 




» 3 hafa sagt sína skoðun

28.10.2008 15:36:42 / Gloppa

Kvartanir

Jæja, ætli maður verði ekki að fara að skrifa eitthvað.  Það hafa borist fjölmargar kvartanir eftir hinum ýmsustu leiðum um bloggleti, t.d. á Facebook,kommentum og Msn.  Pifff... eins og VINNANDI fólk hafi ekki annað við tímann að gera en að blogga.  ;)

Vinnan gengur bara vel.  Ég er endanlega komin með tvö börn sem ég mun passa þar til þau komast á Vuggestue.  Það eru þeir Samuel og Alvin. 1 árs guttar.  Ég er búin að vera bara með Samuel síðan ég byrjaði en Alvin kemur í aðlögun á morgun og föstudag (ég er sko í fríi á fimmtudag).  Þetta gengur bara fínt.  Ég er um 40 mín. að hjóla í vinnuna á hverjum degi og var svo heppin að fá lánað hjól hjá Vildísi á 3 th. Hún á gestahjól sem hún bauðst til að lána mér þar til ég keypti mér mitt eigið hjól, sem verður gert sem fyrst. Foreldrar Samuels eru hið indælasta fólk.  Þau myndu sjálfsagt gefa mér heiminn ef þau gætu það.  Sem dæmi má nefna að ég fékk frí í einn dag þegar ég fór til Svíþjóðar en Neibbsssss, þau ætla ekkert að draga hann af laununum fyrir mánuðinn.  Heppin ég ;) 
Svo tekur við á hverjum degi 3 klukkutíma langur göngutúr með stráksa í vagninum á meðan hann SEFUR.  Já, SEFUR!!!!!!!!!!!  Mamma hans er búin að venja hann á það að sofa bara þegar hann er keyrður um í vagninum sínum eða ef hann sefur inni að degi til,  þá sefur hún hjá honum allan tímann.  JÁ, NEI TAKK !  EKKI SÉNS!!
Þessu verður breytt hið snarasta og byrjar strax á morgun. (þá er ég ein með hann allan daginn, en það er í fyrsta skipti síðan ég byrjaði) og hann verður bara settur örmagna í vaginn og svo skal hann bara sofa.  Sjálfsagt vaknar hann en hann hlýtur að venjast á þetta eins og önnur börn.  Svo tókst mér um daginn að svæfa hann inni og þá svaf hann í rúminu sínu í klukkutíma.  Foreldrarnir áttu bara ekki til orð yfir þessum ótrúlega dugnaði mínum, þetta hafði hann bara aldrei gert fyrr.  heheh Duglega ég !!!!
En ég hafði sem sagt hugsað mér að nota tímann sem þeir sofa til þess að læra þegar ég verð byrjuð í dönskunáminu mínu.  Svo getum við farið út í labbitúr og skoðað heiminn á meðan þeir eru vakandi.

Annars er bara allt fínt að frétta.  Eygló systir er að spá í að kíkja í heimsókn um helgina og þá ætlum við á "Nornaveiðar".  Þórunn...ég taldi mig hafa séð hana í strætó um daginn en áttaði mig svo á að sjálfsagt var þetta ekki sama manneskjan svo ég sleppti því að stökkva á hana... en það munaði mjóu!!!

Tristan Ernir og Alexander Hrafn komu í smá heimsókn á laugardaginn.  Ég bauð foreldrunum nefnilega að fara á DATE og þau fóru í seinnipartsbíó.  Svo við fórum bara hingað heim í smá stund og svo fórum við öll upp í Vedbæk þar sem ég gisti.  Vona að heilsufarið þar sé farið að skána en Ársæll var orðinn veikur á sunnudeginum.

Hey... smá gestaþraut.  Munið þið þegar ég bað ykkur á moggablogginu mínu að koma með hin ýmsustu íslensku spakmæli á ensku.  Hér kemur eitt, reyndar er það á ensku en þið eigið að þýða það á íslensku.   Reyndar er það ekki spakmæli en samt... það er helv.. gott.  Þórunn og Eygló.. að sjálfsögðu megið þið ekki kommenta svarið. 
En hér kemur það...  "Hot spring river this french man."  og nú eigið þið leik. 

Svala sagði mér að það væri saumó á fimmtudaginn.  Stelpur ég mæti að sjálfsögðu á staðinn.. ef ekki í raun, þá í anda ;)


Ég hef enn ekkert ákveðið um það hvort ég fari heim um jólin eða hvað.  Það er ekki laust við að mig langi, svona sérstaklega þar sem Elvar bróðir ætlar að vera fyrir vestan um jólin í fyrsta skipti í langan tíma og svo auðvitað bara til að hitta allt og alla.  En svo er það hitt að það kostar pening og frí.  O sei sei .. við sjáum til. 

Jæja, þetta dugar að sinni

Kv. úr Köben



» 29 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Dagsetning
30. júlí 2010
Leitarbox