Ég var búin að skrifa heilan helling um góða veðrið sem er í Danmörku þessa dagana. Svo fór ég að vesenast í myndum og þá datt auðvitað allt út því ekki hafði ég vit á að vista.
En... í styttra máli sagt, er alveg rosalega gott veður hér þessa dagana. Hitastigið í kringum 20 gráðurnar (segja mér fróðir menn og konur) og sólin brosir sínu breiðasta. Ég held ég sé nú búin að taka einhverjar myndir af surminu en þær eru ekki komnar inn í tölvuna og ég nenni ekki.....
Ég er búin að finna garð sem ég ætla að "eiga heima í " í sumar og er það Kongens Have. Kósý garður með fullt af plássi og fullt af fólki

ummm......gott að sitja þar í sólinni og safna brúnku.
Annars gengur bara vel eins og áður. Hvað varðar framhaldið hér í Köben er ég eiginlega á því að ef ég fæ ekki vinnu á leikskóla þá ætli ég heim. En til að fá vinnu þarf maður víst að sækja um og það er það sem ég þarf að fara að drífa mig í að gera. Uppfæra ferilskrá og labba svo á milli og sækja um.
Eygló systir var hér um síðustu helgi. Hún kom á föstudegi og við fórum að sjálfsögðu á spilavist í Jónshúsi. Það var ljómandi gaman að vanda fyrir utan það að ég var að drepast úr hausverk allan tímann og við sem ætluðum að kíkja í bæinn.. gerðum það eiginlega bara ekki neitt því ég var með þennan endalausa hausverk sem ekki fór fyrr en ég sofnaði... Ömurlega pirrandi og svekkjandi. Gekk nú bara svona sæmilega í spilavistinni, engan veginn vel en var heldur ekki lægst sem kom mér á óvart.. En það er alltaf gaman að spila.
Á laugardaginn kom svo María vinkona Eyglóar til Kbh. á leið í frekara ferðalag um DK. Hún gisti líka hérna hjá mér og við hittum Vedbæk familie í Kongens Have í smá pikknikk og pikknikkið okkar Eyglóar var að sjálfsögðu bjór.

Á laugardagskvöld fórum við svo á kosningavöku, vegna Alþingiskosninganna, á Café Blasen. Það var mjög gaman og eini gallinn var að það var reykt þar inni. Ótrúlegt hérna að ef pöbbarnir eru nógu litlir, þá má reykja þar. Skil þetta ekki......

Sylvester og Ella í legestue. Þar er sungið og spilað á hljóðfæri. Rosa gaman

Og það er segin saga að ef annað þeirra er með eitthvað hljóðfæri vill hitt fá það... Dásamleg...

Er þetta vináttutákn eða merki um það sem koma skal???