Úff ég veit aldrei hvað ég á að skrifa hérna í þennan titil hérna
fyrir ofan.
Elsku Poo og Ævar,Emma og Elvar Atli. innilega til hamingju
með litlu skvísuna ykkar. Nú þegar er komin mynd af henni upp
á ísskáp svo ég get horft á hana hvenær sem ég vil. Svo verð
ég nú að fara að koma og taka myndir og setja inn á síðuna mína.
Hvað um það, Sólrún vinkona átti afmæli ég gær og sökum leti var
bara ekkert kveikt á tölvunni í gær. Hún er því loksins búin að ná
mér í aldri þó það standi nú ekki of lengi. Til hamingju með
afmælið elsku vinkona og ég vona að þú hafir haft það gott í gær.
Rétt í þessu var ég að fá boð í afmælisveislu til Elínar í Ólafsvík
og er ekki bara málið að skella sér þangað, ég held það bara.
Nú er bara að ýta við Guðný Erlu að drífa sig og þá gæti bara orðið
gaman.
Svo ætla ég að taka mér frí frá Sunnukórnum í vetur og prófa nýjan
kór. Það er kvennakór sem er verið að stofna og held ég að
það geti bara verið alveg ljómandi gaman. Fyrsta æfingin mín
verður á laugardaginn en annars eru æfingarnar á miðvikudögum kl.
18-20:00 og svo 1 laugardag í mánuði 10-13:00

Miklar
æfingar en eins og ég segi örugglega bara ljómandi gaman. Ég hlakka
allavega mikið til.
Jæja þetta blogg dugar að sinni og nú vil ég fá smá komment
hérna. Það er ekkert gaman að fá bara kvartanakomment þegar
ekkert er bloggað. Vil líka hinsegin kommnent.
Kv. Lilja