Gaman að þú skyldir koma
22.02.2006 17:20:21 / Gloppa

Ég veit, ég veit.....

Það er satt Hafrún að það er alveg hrikalega langt síðan ég bloggaði síðast en það var bara svo gaman að hafa afmælis- yfirlýsinguna :D  Þá var bara eins og ég ætti afmæli í marga, marga daga.:haha::haha::P

En að gamni ætla ég að setja þetta inn sem ég stal hjá Hafrúnu vink. (hinni gloppunni) þrátt fyrir að hún hafi ekki skorað á mig í þetta sinn.  (Kannski búin að gefast upp á því )

 Góða skemmtun.

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
1.
Skorið, snyrt og pakkað fisk.

2. Þvegið þvott á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki.

3. Sérlegur afgreiðslumaður í Söluskála Essó

4. Passaði börn Reykvíkinga á leikskólanum Ásborg og Súgfirðinga á leikskólanum Tjarnarbæ.

Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

1. Grease

2.Dirty dansing

3.50 first dates

4.There´s something about Mary

Fjórir staðir sem ég hef búið á: 
1. Suðureyri

2. Sauðárkrókur

3. Reykjavík

4. Carmel N.y. Usa

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
1. FRIENDS

2. Desperat housewifes

3. Sex and the city

4. ER

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
1. Rimini Italia

2. Kaupmannahöfn

3. Reykjavík

4. Usa

Fjórar síður sem ég skoða daglega (fyrir utan blogg):
1.www.bb.is

2.www.mbl.is

3. einstaka aðrar síður og svo eru það bara bloggsíðurnar ;-)

Fernt matarkyns sem ég held uppá:
1. Rauðvínslegið lambalæri

2. Pizzur

3. Klessurnar hennar múttu ;)

4. Hamborgarhryggur og tilheyrandi meðlæti

Fjórar bækur sem ég las síðast:
1. Svo fögur bein

2. Barn að eilífu

3. Er að lesa Zorro

4. Er með aðra bók í huga sem ég get ekki fyrir mitt litla líf munað hvað heitir.

Fjórir staðir sem ég myndi heldur vilja vera á núna:
1. Á Spáni

2. Í Karabíska

3. Einhvers staðar annars staðar en heima

4. Og já, segi bara eins og Hafrún, í Disneyworld!!!

  Fjórir bloggarar sem ég klukka:

1. Hildur Sólveig

2. Garpurinn (þess virði að reyna)

3. Ella GB

4. Jóhanna Þorvarðard.


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 21:21:35 / Gloppa

Ég á afmæli í dag!!!!!!!

Bara til að hafa það á hreinu ætla ég að ítreka það að ég á afmæli í dag. Ég er rétt að verða 18 ára..... Í tilefni dagsins var ég með smá kökupartý hérna fyrir fjölskylduna. Guðni og Sigrún, Elva Rún, Guðni Rafn, Guðný Erla og Róbert, Pú og Bo, Auður Birna og Gummi Addi mættu hérna í amælispartý.
Hér var mikið fjör og mikið gaman. Bo er nú ekki farinn að tala mikla íslensku en söng hér af miklum krafti og innlifun "afmæli í dag, afmæli í dag..." Þetta lag er hann búinn að heyra sungið tvisvar í dag og kunni þetta orðið. Frekar fyndið og Guðni Rafn algjör hermikráka fór að raula þetta líka.
 Í afmælispökkum fékk tvær meðlætisskálar í stellið mitt, blóm og treflaslæðu (veit ekki hvað ég á að kalla þetta annað). Já að ógleymdum rjómanum sem Guðný Erla gaf mér.:haha:
Annars er þetta búinn að vera voða fínn afmælisdagur og ég var að fatta það að ég ætlaði á kóræfingu í kvöld en bara steingleymdi því. Er þetta ellin að segja til sín????:$

Pabbi skypeaði áðan og þegar ég var búin að tala við hann í smá stund segist hann ekki hafa meira að segja (by the way... hann var ekki búinn að óska mér til hamingju með daginn) og þurfti ég sem sagt að minna hann á hvaða dagur væri í dag... :$ Ég held að þau ættu bara að fara að koma sér heim úr þessari Ameríku þar sem það er alveg ljóst að þetta Ameríska loft hefur SLÆM áhrif. :klikk:

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 20:39:02 / Gloppa

Dugleg stelpa ;)

Ég var voða dugleg í dag.  Ég fór nefnilega í ræktina hérna á Súganda í íþróttahúsinu og vorum við 6 saman sem vorum með einkaþjálfara til að kenna okkur.  Og vitið þið bara hvað, ég gat gert allt nema armbeygjur á gólfi (sökum meiðslanna í hnénu) en þá kenndi hann mér bara aðra aðferð til þess að gera þær. Svo ég slapp ekki.  Þetta var bara gaman og ég er svona að velta fyrir mér að kaupa 6 mánaða kort.  Eini gallinn sem ég sé við það er að ég er ekki svo viss um að ég verði svo dugleg í sumar.  En hver veit, kannski ef þetta er komið upp í vana.  :haha:
Annars lítið að frétta þessa dagana, ætlaði að byrja aftur í Sunnukórnum í gær, en þegar ég var komin á Ísó og sá allt slökkt þá læddist að mér sá grunur að engin æfing væri sem var svo staðfest með einu símtali. Kórstjórinn var veikur.  Svo það var bara fýluferð og bensíneyðsla sem var þarna á ferð :$ En þá er bara að reyna aftur að viku liðinni. ;) 
En nú er Bráðavaktin að fara að byrja svo ég bið að heilsa í bili.

kv. Gloppa

P.s. Svala ég skora á þig að svara spurningalistanum hérna fyrir neðan. :haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
22. mars 2010
Leitarbox