Ég hélt smá partý í tilefni þess að verða dirty five og var bara
mjög gaman. Ég fékk margt sniðugt og skemmtilegt í afmælisgjöf en
áður en ég tel það upp þá vil ég þakka öllum þeim sem sendu kveðjur
í gegn um sms og bloggið, gáfu mér pakka og aðstoðuðu mig við
partýið. Ástarþakkir þið öll.
en þá er komið að upptalningunni. Sængurverasett með milliverki
saumuðu eftir mömmu, 2 hvítvínsglös, 2 rauðvínsglös (sem ég ætla að
skipta í hvítvínsglös), 4 koniaksglös og öll glösin eru auðvitað úr
Stráinu
nú ég fékk líka flísgalla til að vera í heima,
geisladiskinn með Ladda, kerti, blóm (rósir og að ég held
einhverskonar gúmmíblóm???) gjafabréf á Divu (snyrtistofu á Ísó),
og gjafabréf í andlitsnudd og maska hjá Öldu. Rauðvín. Sem sagt
allt alveg frábært. Ég fór svo í dag til hennar Öldu því hún er
stödd hérna fyrir vestan til að fríkka upp á liðið fyrir góublótið
á morgun. Dííííí þetta var alveg frábært. Að maður skuli ekki gera
þetta oftar. Nú Þorgerður (sem gaf mér þetta) var líka búin að
redda rauðvíni sem ég átti að fá á meðan á meðferð stóð, en það var
ekki nokkur leið að opna flöskuna. (Held þetta hafi verið útpælt
hjá henni) En Alda reddaði því áður en ég fór heim og ég fékk nýja
flösku með mér heim. Svo það verður bara kósý kvöld í kvöld.
Góublótið á morgun og væntanlega voða gaman eins og alltaf. Fékk
mér engann nýjan kjól fyrir þetta blót heldur verð bara í einhverju
gömlu. Vona að mér verði bara ekki hent út. heheheh
Well læt þetta duga að sinni.
p.s. Halla frænka! Ég stefni á að koma í afmælið þitt í mars.
Mikið gaman, mikið fjör.