Gaman að þú skyldir koma
31.05.2007 20:38:58 / Gloppa

Jæja, það kom að því...

Veðrið aðeins farið að skána og þetta stóra gula þarna uppi er aðeins farið að láta sjá sig.  Batnandi sólum er best að lifa.

Syngjum á fiskiveislu á laugardaginn og svo verður haldið á Mývatn aðra helgi eins og áður hefur komið fram.  Er ekki alltaf svo gott veður þarna fyrir norðan??? Hlýt að geta náð mér í smá brúnku þar.. Ég er orðin voða spennt fyrir þessa ferð svo það er eins gott að það eyðileggist ekki allt með snjókomu.  Leitaði um alla Reykjavík að svörtum langermabol síðast þegar ég var í bænum sem kórbúning fyrir Mývatnsferðina, þar sem við ættum "pottþétt" að vera svartklæddar, nei nei þá veltur upp úr þeim á síðustu æfingu að við eigum að vera í svörtu að neðan og hvítu að ofan...og ég á ekki hvítt til að vera í að ofan og það sem verra er það fæst ekkert slíkt á Ísó.  Svo það er bara að kíkja í Bolungarvíkina og vita hvað þeir eiga. :$

Annars ekkert merkilegt að frétta  :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 22:05:27 / Gloppa

NÚ ER ÞAÐ SVART...

... allt orðið hvítt. já hér snjóar og snjóar eins og það sé rétt um miður mars. Ég get nú engan veginn sagt að ég sé sátt við þetta. Hvers vegna getur ekki bara verið vetur yfir þessa vetrarmánuði og vor og sumar þegar að því kemur??? Þessir veðurguðir eru gjörsamlega að spila út held ég. Þetta hlýtur bara að lagast fljótlega, trúi ekki öðru.. það eina góða við þetta er þá að hvítasunnuhretið er þá BÚIÐ!!!!!!!! Eða það ætla ég rétt að vona...

Undanfarna daga hefur bara verið nokkuð mikið að gera. Á síðustu helgi sungum við í kvennakórnum Vestfirsku Valkyrjurnar nokkur lög (ok. þau voru bara 3) á tónleikum með Árnesingakórnum. Það voru miklar og strangar æfingar sem áttu sér stað áður en þetta gat orðið að veruleika en svo tókst þetta bara ljómandi vel þegar uppi var staðið. Árnesingakórinn stóð sig rosalega vel og sungu mörg skemmtileg og falleg lög og kórstjórinn var alveg brill... reytti af sér brandarana og auglýsti geisladiskinn þeirra á snilldarlegan hátt. Um kvöldið var svo "kaffisamsæti" með þessum ágæta kór. Þar var borðað, sungið og sungið og sungið og sungið og sungið svo ennþá meira. Þvílíkt fjör. Þetta var alveg hrikalega gaman og eftir þetta var svo haldið á Langa Manga þar sem ég hitti Oddný og Ingólf og Leif og Petru og svo auðvitað Auði Birnu og Ársæl. Mikið fjör og mikið gaman og þar sem ég var búin að ákveða að gista hjá Guðný Erlu á Ísó þá skellti ég mér í partý eftir ball. Alltaf gaman að breyta til og fara í eftirápartý.. er nú ekki mikið fyrir það svona yfirleitt en ég var í þvílíku banana stuði að ég var engan veginn tilbúin að fara heim. Svo eru framundan fleiri æfingar og svo kóramót við Mývatn 8-10 júní. Spennandi það.

Á sjómannadaginn verður svo hin árlega fiskiveisla Íslandssögu og Klofnings og þar gæti verið að Valkyrjurnar væru að syngja. Nú þá verður eintóm gleði líka það kvöld.

Nú svo get ég sagt ykkur það kæru lesendur að það eru 99,9% líkur á því að ég verði leikskólastjóri hér á Suðureyri næstkomandi ár. Svava Rán og Venni ætla að leggja land undir fót og rúmlega það og fara til Englands í 1 ár. Gott hjá þeim. :P

 

Þannig að margt að gerast og því ekki úr vegi að kasta sér í sófann og safna kröftum.


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 14:20:05 / Gloppa

Á ég kannski að blogga????

Eitthvað hefur verið kvartað yfir bloggleysi þó að einungis tvær kvartanir séu á síðunni.  Svo það er best að blogga.

heilmikið er svo sem búið um að vera sem vert hefur verið að blogga um en ég hef bara ekki nennt.  Svo einfalt er það.  Síðan síðast er ég búin að fara tvisvar til Reykjavíkur og heim aftur, Ævar bro búinn að eiga bráðskemmtilegt 50 ára afmæli.  Þar sem við öll systkinin vorum saman komin að vanda og auðvitað var samin smá vísa í tilefni dagsins um hann.  Hann fékk hrakfallabálkavísu en ég hélt að það yrði ég sem fengi hana ;)

 

Nú Auður Birna er líka búin að eiga afmæli 24 ára en það fór nú eitthvað minna fyrir því.  heheh

 

Vorið kom og fór strax aftur um daginn.  Hér var brakandi sól og blíða og steikjandi hiti en eins og áður sagði þá hefur lítið farið fyrir sólinni þessa dagana.  Bara skítakuldi :^) 

 Þó það sé vart frásögum færandi þá fór ég í Bónus um daginn og mér finnst alltaf svolítið fyndið að fara þangað því það er svo mikið um óskrifaðar "umferðarreglur" í búðinni. Í þessum rekka ferðu í "þessa átt" og í hinum rekkanum í "hina áttina". Og ef einhver fer í aðra átt þá er ekki von á góðu.  Geri stundum að gamni mínu að fara í öfuga átt miðað við umferðarreglur bara til að valda vanda hehehh...  :haha:


Jæja ætli þetta dugi ekki að sinni bara, Þórunn Gyða farðu nú að hunskast til að vera á msn svona til tilbreytingar...

 

Later dudes........:lol:

 


» 1 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
19. mars 2010
Leitarbox