Gaman að þú skyldir koma
31.12.2008 21:48:15 / Gloppa

Gleðilegt ár.

Kæru vinir, vandamenn og aðrir lesendur.

Ég óska ykkur öllum gleðilegrar jólarestar og sendi ykkur bestu óskir um gleðilegt ár.  Vona að árið 2009 verði ykkur gott að öllu leyti. 

Ég stefni á að vera duglegri að blogga á nýju ári en lofa þó engu.  Gangið hægt um gleðinnar dyr i kvöld sem og önnur kvöld og farið ykkur ekki að voða í flugeldunum.  Sjálf  ætla ég að standa í öruggri fjarlægð og horfa á hina skjóta upp.


ykkar Lilja

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 01:22:51 / Gloppa

Jólakveðja

Kæru vinir

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Þakka liðið ár og þeim sem hjálpuðu mér á einn eða annan hátt við flutningana í haust, þakka ég sérstaklega vel fyrir ómetanlega aðstoð.

Hlakka til að hitta ykkur öll á komandi ári og vona að kreppan fari að lagast svo ég geti farið að fá heimsóknir. 


Jólakveðja

Lilja



» 1 hafa sagt sína skoðun

19.12.2008 10:36:54 / Gloppa

Jólahikk....

Vill endilega deila med ykkur hinni einu sønnu uppskrif af dønsku jólagløggi
Ótrúlega gott...

Danskt Jólaglögg

1 líter vodka
1 rúsína.

Skreytt með greni.

Svo tegar gløggid hefur verid teygad, syngja allir einum rómi

Skín í væna vínflösku,
og huggulega bjóra,
jólaglögg og eplasnafs
allt það ætĺ'að þjóra.
Dufla og daðra og leika mér
látum illa í desember
burt með sokk og skó
hér af  víni er nóg.
Ó, hvað ég elska jólin,
von' ég  hitti á stólinn.

Jebbs svona ætla ég ad hafa tad um jolin.  Bestu kvedjur til ykkar allra.  Og athugid ad jólakortin munu verda rafræn í ár, og koma tegar wordid mitt verdur klárt.

Er komin í jólafrí frá og med deginum i dag, en er reyndar i heimsókn hjá vinnuveitendunum.  Segid svo ekki ad madur skemmti sér ekki í vinnunni.

JÓLAVÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ

Lilja 


P.S. Katrín tú sendir bara lakkrísinn í pósti.


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2008 11:43:29 / Gloppa

Jólavííí

Fyrir ykkur sem viljið vita heimilisfangið í Svíþjóð þá er það eftirfarandi.

Lilja Einarsdóttir
c/o Eygló Einarsdóttir
Kulturgatan 31
57090 Påskallavik
Sverige


kv. Lilja

p.s. 8 dagar í jólavííííí


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.12.2008 10:21:10 / Gloppa

Best að nýta tímann

Ég tók tölvuna mína með mér í vinnuna í dag.  Hef nú ekki gert það oft en jú er svona aðeins að byrja á því.  Veit nefnilega núna hvernig ég get tengst internetinu héðan og nýt þess að vera ein um það ;) 
Ýmsar ákvarðanir, jah eða kannski bara tvær ákvarðanir, hafa verið teknar síðan í síðasta bloggi.  Skal þar fyrst nefna þá staðreynd að ég kem ekki heim um jólin.  Ég ætla að vera í Svíþjóð þessi jól.  Staðreyndin er að þegar ég fór að hugsa málið aðeins nánar sá ég að það væri það eina skynsamlega í stöðunni.  Peningamálin eru bara ekkert orðin almennilega góð eftir að ég flutti út og þurfti að borga húsaleiguna á himinháu íslensku gengi.  Úffff.... ég svitna bara við tilhugsunina hvað leigan hækkaði í íslenskum krónum á milli mánaða... eins gott að þeir dagar eru liðnir og nú borga ég hana bara í dönskum.
En ég ætla s.s. að njóta jólanna í Svíþjóð þar sem ég verð í jólafríi frá 20. des - 5. janúar. ;)  Langt síðan ég hef átt svona langt jólaFRÍ ;)

Hin ákvörðunin er sú að ég er að flytja um áramótin.

Fyrst um sinn verður það ekki langt heldur bara upp á þriðju hæð (bý á fyrstu núna).  Ég ætla sem sagt að hætta að leigja með þeim Siggu og Grímu.  Er orðin frekar þreytt á að búa í fataskáp.  Herbergið mitt er ekki stærra en það.  Ég kem inn í það 120 cm vindsæng, einni þvottkörfu (með því að troða henni) og pappakassa sem náttborð undir tölvuna mína.  That´s it!!!!!! meira kemst ekki fyrir þar.  Jú svo er 1 einfaldur fataskápur með 1 hillu og svo bara hengi!!!!  Eins og sjá má ekki mikið pláss.  Allavega þá er ég farin þaðan um áramótin eða reyndar náttúrulega bara þegar ég fer til Svíþjóðar.  Herbergið sem ég get fengið leigt upp á þriðju er hjá konu sem við kynntumst hérna úti og heitir Vildís.  Það er sko mun og þá meina ég mun stærra herbergi og meira að segja fylgir því rúm.  Fataskápur yfir heilan vegg og ég kæmi vel einhverjum fyrirferðarlitlum húsgögnum þar.  En ég reyndar stefni nú ekkert á að vera þar neitt lengi, bara svona þar til ég finn eitthvað annað. 

Vinnan gengur bara vel, eða þannig... Er með barn í aðlögun núna og hún grætur svolítið mikið greyjið.. er ekki alveg sátt við þetta fyrirkomulag.  En eigum við ekki bara að trúa því að það lagist fyrr en síðar.  En það er ótrúlegt hvað það tekur á að vera einn með svona ókunnugt barn sem grætur og grætur.... mætti ég þá heldur biðja um samstarfsmennina á leikskólunum sem geta tekið við þegar maður hefur fengið nóg... úfffff............ Hafrún vink. ég get vel ímyndað mér að það hafi stundum tekið á að vera dagmamma...  en já ég ætla að trúa því að þetta lagist sem fyrst.  Þau sofa reyndar núna og eru búin að sofa í 11/2 tíma.  Vakna eftir svona 1/2-1/1.

Það rignir og rignir hér í Köben núna.  Snjóaði aðeins um daginn, en það varði stutt og rigningin tók aftur völdin.  Það var sko ekki séns að ég nennti að hjóla í morgun í vinnuna.. ég tók bara strætó.  Svo er það dönskuskólinn eftir vinnu svo þetta er langur og strangur dagur.  Ég ætlaði að vera rosa dugleg áðan og gera verkefni fyrir skólann sem ég var ekki einu sinni viss um að ég ætti að gera... en þá gleymdist verkefnablaðið heima svo stílabókinni var bara lokað aftur og bloggað í staðinn.  Eruð þið ekki glöð með það?????

Ég keypti fyrstu jólagjöfina í gær.  Loksins þegar ég átti pening ;)  Svo verða fleiri gjafir ásamt jólakortum keyptar á næstu dögum.  En allt í einu finnst mér eins og tíminn sé að hlaupa frá mér og það verði komin jól áður en ég nái að snúa mér við. 

Jæja, best að ég láti þetta duga að sinni.  Hittumst heil þó síðar verði ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
22. mars 2010
Leitarbox