Gaman að þú skyldir koma
14.01.2009 19:51:07 / Gloppa

Allt að gerast á nýju ári.

Vá... það er svo sannarlega allt að gerast há mér núna.  Í dag var síðasti dagurinn minn hjá fjölskyldunni "minni" , eða þeirri sem ég byrjaði hjá í haust.  Það sem þetta fólk er frábært, er bara frábært.  Ég hef skrifað um það áður og það hefur ekkert breyst.  Svo sannarlega ekki.  Í kveðjugjöf gáfu þau mér myndaramma með tveimur myndum af okkur Samuel saman.

Allavega það sem er að gerast er...


1. Vinna

Ég er búin að ráða mig í að vinna hjá vinahjónum við að passa börnin þeirra samtals tvö stykki.  Þau búa í Vesterbro sem er í næsta nágrenni við Tívolíið, Hovedbanegården og Istegade.  Megin ástæða þess að ÉG valdi þetta fólk var sú hvað þau byggju miðsvæðis og í ljósi þess að ég var ekki búin að finna húsnæði, þá sá ég þetta góðan kost þar sem allar áttir liggja að Hovedbananum.  (aðal járnbrautarstöðin í Köben, fyrir þá sem ekki þekkja til).Stutt frá Strikinu.   Þetta eru mun yngri börn en ég hef verið að passa í vetur eða um 8-9 mánaða.  En það er nú allt í lagi.
Ég reyndar fór og sótti um vinnu á leikskólanum hans Krumma míns, en þar voru svörin "bæði og".  Voða gott að fá leikskólakennara með mikla reynslu EN talar ekki nógu mikla dönsku.  En svo reyndar nefndi hann í tölvupósti svokallaða "Vikar" stöðu (afleysing).  Ég spyr þá á móti hvað við séum að tala um... mæti ég á hverjum degi í ákveðinn tíma á dag, eða hringir hann þegar hann (N.b. leikskólastjórinn er karlmaður) vanti mig. Við þessum tölvupósti fékk ég bara ekkert svar svo ég ákvað að halda mig bara við það starf sem ég hefði verið að vinna.  Fer svo bara á svona "leikstofur"   til að hitta annað fólk.  Fínt.... Svo líka fór ég að hugsa annan kost við þetta starf.  (þó maður sé svona einn) það er það að í sumar er maður svo mikið sjálfs síns herra.  Get farið í bæinn með börnin (verst að maður má ekki drekka bjór í vinnunni :$ ) og notið þess að vera úti í sólinni sem ég ætla að hafa í sumar.  Og það sem meira er að þessar tvær fjölskyldur eru svo glaðar að ég hafi valið þær að ég er búin að heyra svona 20 sinnum (án þess að ýkja held ég bara) "We're so happy".  Svo er bara að vona að ég standist þeirra væntingar. ;) 
En í heildina séð líst mér mjög vel á þetta fólk og vona að við getum unnið jafn vel saman og ég, Sumbal og Christoffer höfum gert.

2. Húsnæði

Vildís, (þessi sem ég flutti upp til um áramótin)  er að flytja heim til Íslands aftur núna í febrúar.  Svo þá var að byrja að leita að húsnæði.  Fyrr í vetur var ég búin að skoða íbúð sem Sumbal og Christoffer eiga með það í huga að leigja annað herbergið þar, því leigan var annars 8000 dkr. (mjög dýrt).En þegar ég skoðaði hana fannst mér hún alltof lítil til þess að deila henni með einhverjum öðrum og þá sér í lagi einhverjum sem ég þekkti ekki neitt.  (Ég hefði þurft að borða í svefnherberginu.) Svo ég sagði "nei takk". 
Nú, þá var ekkert annað að gera svona eftir að búið var að finna vinnu að einbeita sér að herbergja/íbúða leit.  Ég skellti auglýsingu inn á einn vef sem ég skráði mig á og Ingileif, sem er með mér í kórnum, hjálpaði mér að snara henni yfir á dönsku.  Takk fyrir það Ingileif !! Allavega, auglýsingin fór inn og ég komst í samband við mann sem hafði tvö herbergi á leigu.  Misdýr og misstór og stærra herbergið á að kosta 3200 dkr. en það minna 3000dkr. Ég sendi honum svo e-mail um hvort ég mætti koma og skoða á fimmtudag, þar sem ég er í fríi þá, og það var auðsótt mál.  EN.......... í dag segja svo Sumbal og Christoffer (já, þau eru eiginlega orðin frekar stór þáttur í mínu lífi hér í DK.) að ef ég vilji leigja íbúðina þeirra sem er by the way DOWN TOWN, þá væru þau til í lækka hana.  Frekar en að hún standi auð og eiginlega vilja þau ekki selja hana núna þar sem íbúðaverð er frekar lágt í DK.  Þau vilja heldur lækka leiguna og ef þau fá einhvern sem þau þekkja og treysta þá eru þau sátt.  "Hefur þú áhuga á því" ????  Ég segi auðvitað jááááá... og þá er spurt "hvað geturðu borgað svo þú getir líka lifað af því sem þú átt eftir"  Ég segist hingað til hafa verið að borga um 4000dkr. og ég hafi sett inn max 5000dkr. í auglýsinguna mína.  Þá tala þau um 4500 dkr. og sendu mig svo heim að hugsa málið.  Og það er ég búin að gera og ég held að ég segi bara "JÁ TAKK" í þetta sinn.  Það er reyndar einn galli á þessari íbúð, sturtan er sameiginleg með nokkrum öðrum íbúum hússins.  Og hún er á efstu hæð (íbúðin er minnir mig á 3 hæð, sturtan á 6).  Vissulega stór galli en maður getur nú alveg látið sig hafa það í einhvern tíma.  Þau töluðu líka um að þau hefðu verið að spá í að setja einhvern sturtuklefa í íbúðina svo það væri eitthvað sem alveg mætti skoða.  Ég held að til að byrja með allavega geti maður alveg farið upp í sturtuna þó langt sé (bara líkamsrækt), ég meina íbúðin er DOWN TOWN.....

3. Ísland

Já, nei ég er ekki að koma vestur, ekki í þetta sinn.  Hins vegar höfum við Eygló og Þórunn Gyða, pantað okkur ferð til Íslands um aðra helgi eða 22-26. janúar.  Það kom svo frábært tilboð inn frá Iceland Express og mig langaði svo að kíkja í heimsókn til Íslands.  Ég sendi því þeim mæðgum póst um hvort ekki væri tilvalið að við skelltum okkur í ferðalag saman og færum á ættarþorrablót Bossara.  Eftir smá Fésbókar umræður ákváðum við að drífa okkur.  Í dag voru svo pantaðir miðar og er brottför til Íslands fimmtudaginn 22. janúar með hádegisvél og út aftur mánudagsmorguninn 26.janúar.  Ég á reyndar eftir að ræða við nýju fjölskylduna um þann dag, en ég efast eiginlega ekkert um annað en að það verði í lagi.  Hinir dagarnir voru auðsóttir og því hef ég litlar áhyggjur.  Þau töluðu um að það yrðu margir frídagar í jan og feb. og þetta fer bara inn í þá. ;)  En sem sagt: ÍSLAND HERE WE COME... BLÓTVÍÍÍÍ !!!  Við erum allar svo spenntar að við erum að deyja hérna.  Búið ykkur undir niðurtalningu.  Svala, ég treysti á að ég nái að hitta á ykkur SBS.

Er nema von að Vildís hafi spurt hvort ég væri með einhvern þarna uppi sem passaði svona upp á mig.  Jebb, ég hef lengi haft þá trú að "litla amma" (mamma mömmu) sæji um mig... byrjaði á því sem barn/unglingur held ég bara.  Og ég ætla að halda áfram að trúa því að hún hafi átt hlut að máli.

Þetta er nú svona það helsta sem er að frétta af mér héðan úr Dk þessa dagana.  Ég átti alveg yndisleg jól og áramót í faðmi stærstu systur og fjölskyldu, ásamt því að Sólveig og Viggi komu í heimsókn.  Algjörlega frábært.  Ég nenni nú eiginlega ekki að skrifa neitt meira um það núna en segi bara "bjór og náttföt"  !!!  Ég skal segja ykkur betur frá því síðar.  Ég fékk fullt af frábærum jólagjöfum og Petra... ég skal líka segja frá því næst. 

Að lokum vil ég þakka öllum sem sendu mér jólakort hingað til Dk.  Sjaldan verið eins gaman að fá þau.  Að öðrum jólakortum ólöstuðum þótti mér sérlega vænt um myndakortin af grísunum "mínum".  Takk takk þið öll sem senduð mér slík.  Þau eru (ásamt hinum jólakortunum auðvitað) sem stendur í glugganum en í nýju íbúðinni fá þau heiðurspláss uppi á vegg í stofunni (ásamt hinum auðvitað). 


» 10 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
19. mars 2010
Leitarbox