Í gær þriðjudaginn 6.okt 09. fór ég í "langþráða" aðgerð á vinstra hnénu. Forsaga málsins er sú að fyrir tæpum 4 árum datt ég fyrir utan húsið heima hjá mér og sleit liðband í vinstra hnénu. Síðan þá hef ég bara ekki staðið í lappirnar svo ekki sé meira sagt. Við minnsta álag, bleytu, hálku eða hvað það nú var, var ég komin niður á gólf/götu. Akkúrat enginn stöðugleiki í fætinum.
Í vor (í maí, nánar tiltekið) datt ég svo enn og aftur á hjólinu mínu á leið heim. Var að flýta mér heim því ég ætlaði að ná næstu lest til Eyglóar systur, eftir rúman hálftíma. Ég átti eftir að pakka smá niður og gera íbúðina klára til sýningar á sunnudeginum. (þetta var á laugardegi) Ég hjólaði vitlausu megin á götunni og þegar ég mætti hjólandi manni, ákvað ég að víkja upp á gangstétt (hefði alveg getað vikið á annan hátt) og hugsaði um leið "þetta á eftir að enda illa"... sem það og gerði. Ég, eins og áður sagði, hrundi í götuna og með herkjum gat ég staðið upp og haltrað heim. Skemmst er frá því að segja að ég komst til Svíþjóðar en í vinnu fór ég ekki næstu tvo dagana. Á mánudeginum fór ég svo til læknis því hnéð var stokkbólgið og ég var ansi hrædd um að ég hefði skaðað eitthvað meira í þetta sinn. Læknirinn sendi mig í sónar og það kom akkúrat ekkert út úr því. Ekki sjáanlegt að neitt væri að. Því næst sendi doksi mig upp á spítala þar sem ég fékk tíma í júlí, eftir að ég kom aftur út eftir sumarfrí á Íslandi. Sá læknir, ákvað að senda mig í MR skanna til að finna út úr því hvað væri að. Þann tíma fékk ég í byrjun september, á sunnudegi. Tæpum tveim vikum síðar fékk ég svo aftur viðtalstíma við lækni sem sagði mér að það væri alveg ljóst að ekki væri allt í lagi með hnéð. Satt best að segja varð ég glöð þá. Það var þá staðfest að allur þessi sársauki og pirringur og óþægindi í hnénu væru ekki bull. Og ég var sem sagt send í aðgerð.
Í aðgerðinni kom í ljós að skaðinn var slæmur. Doksi sagði að það væri nú ekki oft sem þeir sæju svo slæman skaða. Þeir fjarlægðu hluta af liðþófanum beggja vegna í hénu, fjarlægðu slímhimnu í hnénu og löguðu fremra krossbandið sem var mikið skaðað. Ef allt gengur upp verður þessi aðgerð látin duga, en eftir heimsókn til sjúkraþjálfara og læknisins aftur verður metið hvort það þurfi að endurbyggja liðþófann og þá þarf ég í aðra aðgerð. Vonum bara að svo verði ekki.
Ég var svæfð á meðan þetta fór allt fram og áður en ég sofnaði sagði svæfingarlæknirinn að stundum dreymdi mann af þessari svæfingu og þá oftast það sem maður væri að hugsa um rétt áður en maður sofnaði. Svo fór hann að spyrja hvað ég hefði gert í sumarfríinu og ég fór inn í svefninn hugsandi um sólina, sumarið, góða veðrið og Sæluhelgina... En.... dreymdi svo bara akkúrat ekki neitt. Ég var eiginlega bara hundfúl þegar ég fattaði það.
Eygló systir kom og var hjá mér fyrir og eftir aðgerð. Það var ómetanlegt. Takk fyrir það elsku sys.
Í dag, keyrðum við svo sem leið lá til Påskallavikur og hér ætla ég að vera næstu tvær vikurnar á meðan ég er að jafna mig. Miklu betri aðstaða og pláss heldur en heima hjá mér. Hnéð á mér er u.þ.bþ 10000000 falt, svo bólgið er það en ég er að vinna í því að laga það. Ég má stíga létt í fótinn en er samt með tvær hækjur mér til stuðnings. Hundunum líst reyndar ekkert á þær og mig þegar ég legg af stað með þær, hehehhe......
En sem sagt, þrátt fyrir allt, hef ég það bara nokkuð gott. Ég finn minna til í hnénu nú en ég gerði fyrir aðgerð svo ég hef trú á því að þetta muni lagast og verða betra.
Að öðru, fyrst ég er komin í gang..
Ég er flutt frá Vesterbro á Nörrebro. Íbúðin sem ég var í var seld. Nú bý ég í 56 fm stúdíóíbúð sem inniheldur bæði ELDAVÉL og STURTU. Meira en var á Vesterbro. Ég held að þarna muni mér bara líða vel. Ég er búin að ákveða það og eins og ég segi, þá er þetta mjög fín íbúð og mun stærri en sú sem ég var í. Svo nú er ennþá meira pláss til að taka á móti góðum gestum.
Nú, svo er för minn heitið til USA í nóv. Elvar bróðir verður 50 ára og eins og alltaf, þá er skyldumæting þangað. Ég er reyndar ekki búin að panta ennþá, en ég FER og ætla að vera í viku.
Þetta var helst í fréttum í dag, set inn frekari fréttir af framvindu batans. Fylgist með á www.gloppa.blogcentral.is
over and out
Hrakfallabálkurinn