Gaman að þú skyldir koma
19.05.2009 21:43:20 / Gloppa

Dagurinn þegar seinni hlutinn gekk á afturfótunum

Dagurinn í dag byrjaði með sól og þvílíkri blíðu.  Það skal tekið fram í upphafi að sú sól og blíða hélst allan daginn.  Ég hitti  Guðný Erlu, Auði Birnu og börn á Hovedbanegården um hádegisbilið og við fórum í Dýragarðinn þar sem við vorum þar til ég þurfti að yfirgefa þau til að skila af mér mínum grísum.
Svo hófust vandræðin...

Ég kom of seint heim að skila börnunum, foreldrarnir (jah ok. önnur mamman) aðeins seinna en það og ég slóraði aðeins lengur en dreif mig svo út, því ég byrjaði aftur í dönskunáminu í dag og tíminn átti að byrja 17:15 og ég að sjálfsögðu seinna á ferðinni en ég ætlaði, sér í lagi þar sem ég átti eftir að finna staðinn þar sem tíminn var.  Það tókst nú eftir ekkert allt of langa leit en auðvitað mætti ég of seint.(ég hata að mæta of seint).  Allavega tíminn var fínn og ég virðist hafa lent í nokkuð hressum bekk. 
Á leið heim, kom ég við á KFC og kippti með mér einum Twister og hlakkaði mikið til að fara heim að borða hann.  Flýtti mér eins og ég gat.  Um það leiti sem ég er að labba inn í götuna mína, fatta ég að ég er lyklalaus og að lyklarnir væru á eldhúsbekknum!!!!!!!!
Ég hringdi þá í eigendurna, sem ekki áttu aukalykil í sínum fórum svo nú voru góð ráð dýr.  Á meðan ég er að tala við Sumbal fatta ég að ég hafi farið út bakdyramegin, þegar ég skaust heim í morgun og þar sem hún er nú ekki 100% örugg ef maður fer lokar henni utan frá, sá ég glætu.  Ef ég kæmist inn í garðinn (þess má geta að garðurinn tilheyrir nokkrum blokkum sem liggja umhverfis hann og mynda hálfgerðan hring), kæmist ég sennilega inn bakdyrameginn.
Á meðan ég stóð og var að hugsa um á hvaða bjöllu ég ætti að hringja til að fá einhvern til að koma niður og opna fyrir mig hurðina inn í garðinn, (það þarf sérstakt apparat til þess, nokkurskonar segul)  komu nokkrir strákar aðvífandi.  jú, jú ekki málið, inn í garðinn opnaði einn þeirra og ég að sjálfsögðu lét hurðina skella á eftir mér.
 Þá fattaði ég....útidyrahurðin á bakvið væri mjög líklega læst og til þess að opna hana vantaði mig lykillinn sem eins og áður sagði var á eldhúsborðinu.  .."Jæja", hugsaði ég, "ég er þó allavega komin inn í garðinn og get bara skilið hurðina (hliðið) eftir opna til að fara út og hringja á dyrabjöllu", en "#$&%$//#%&(/&/ til þess vantaði jú sama apparatið og til að opna utanfrá...svo nú var ég ekki bara læst úti, heldur inni í garði. 
Ég lít í kringum mig og auðvitað var ekki sála sjáanleg, nema einhver kokkur..(sem kemur málinu akkúrat ekkert við).  Ég fer þá að kíkja að gluggunum á 1 hæðinni (n.b. ég bý á 3 hæð skv. ísl.talningu)  og í mínum stigagangi var allt slökkt...EN... ég mundi þá eftir því að ég hafði einhvern tímann hleypt inn manni á nr. 3 með mínum "masterlykli" svo að lyklar á nr. 3 hlytu að virka á nr. 5.  Í glugga (á nr. 3 var ljós svo ég fór þangað og teygði mig upp í gluggann og bankaði með símanum (náði ekki upp öðruvísi) og þá kom þessi líka elskulegi maður til dyra og opnaði fyrir mig dyrnar.  Svo ég fór upp og eins og ég hélt þurfti ekki stórátak til að komast inn bakdyramegin.
Held ég láti smíða aukalykil/lykla og geymi viðsvegar um bæinn
Þetta endaði nú allt vel, en þegar ég kom heim var ég komin með dúndrandi hausverk og Twisterinn minn orðin kaldur.........


» 4 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
19. mars 2010
Leitarbox